Orðaskrá í lestrarfræðum: handbók
Ensk-íslensk
Orðaskráin er uppflettirit og sýnir íslenskar þýðingar og/eða skýringar á 850 enskum hugtökum um læsi. Það er ætlað fræðimönnum á sviði læsis, kennurum, kennaranemum og öðrum sem áhuga hafa á efninu. Orðaskránni er einnig ætlað að festa í sessi orðaforða um læsi sem hefur myndast í áranna rás meðal íslenskra skólamanna.
